Velkomin á heimasíðu Gullkisa.

Himalayans, Solids and CPC persians

Silkikisi Touch Of Gold JW
Flame point
Multi BIS winner

Gullkisi Friends are Forever


kynnum með stolti nýja strákinn okkar

Tombrock Pasquel

Eigendur: Kolbrún Gullkisa og Dagrún Gullaldar persar

Ég heiti Kolbrún og er stoltur eigandi af Gullkisa kattarækt. Að vera eigandi og ræktandi þessara yndislegu dýra hefur fært mér ómetanlega hamingju og marga frábæra vini. Bryndís vínkona mín er meðræktandi minn og býr hún á Akureyri ásamt manni sínum Sigga, dóttur þeirra og auðvitað kisukrúttum. Gullkisi er lítil kattarækt staðsett á Selfossi. Ég get seint þakkað Ólöfu hjá Silkikisa fyriróendanlegan stuðning og kennslu og umfram allt frábæran vinskap án hennar væri ég ekki stödd þar sem ég er í dag. Takk elsku Ólöf og Bjarmi. Ég vil bjóða Dagrúnu velkomna sem nýjan ræktanda og í samstarf við mig hennar ræktunarnafn er Gullaldar persar. Við kappkostum okkur að hafa heilbrigði í fyrirrúmi og þess vegna erum við með fá got a ári og fáar kisur í heimili. Kisurnar okkar eru Himalayan persar, einnig kallaðir Colourpoint persar. Nafnið vísar til þess að litur þessa persa kemur einungis fram á útlimum, eyrum og andliti og þeir eru bláeygir. Gullkisi er PKD DNA prófuð kattarækt. Þú getur lesið nánar um það og einnig þessa kattategund á Fróðleikssíðunni. Þrátt fyrir að þessi litla kattarækt sé fyrst og fremst áhugamál og kisurnar gæludyrin okkar, ætlum við taka þátt í syningum af fremsta megni og reyna að leggja okkar að mörkum við að rækta fallegar, heilbrigðar og mannelskar kisur af þessari tegund hér á Íslandi. Ég hef einnig tekið þá ákvörðun að bæta við heillitum persum í rækt mína og kemur daman mín til Íslands mjög fljótlega. Ef þú vilt ná á mig þá sendu mér póst. Hér fyrir neðan er tengill á fróðleikssíðu Gullkisa ef þú vilt fræðast meira um þessa tegund. Takk fyrir komuna og endilega skrifið í gestabókina áður en þið farið!

Fróðleikur!

Börnin okkar

 


 

 

Nú eru allar okkar kisur PKD prófaðar og allar neikvæðar.

Það þyðir á "mannamáli" að þær bera ekki hinn ólæknandi arfgenga nyrnasjúkdóm: Polycystic Kidney Disease, sem fram til þessa hefur verið algengur aðallega í persneskum köttum, en einnig þekktur í kattartegundum sem eru skyldar persum s.s Exotics, Himalayans, American Shorthairs og Scottish Folds og fleiri tegundum þar sem viljandi eða óvart hafa verið notaðir persar til ræktunar eða kynbóta.

 

Hve algengur og hvernig greindur ?

Talið er að 37% persa og Exotics hafi borið þennan sjúkdóm, en aðeins um 6 % katta sem eru óskyldar persum. PKD í köttum er oftast lengi að þróast, þrátt fyrir að vera meðfæddur og greinanlegur með sónarskoðun í nyrum fyrir 12 mánaða aldur. Að meðaltali fer að bera á skertri nyrnastarfsemi um 7 ára aldur sem að lokum leiðir til banvænnar nyrnabilunar. En kettir geta líka verið það lengi að þróa sjúkdóminn að þeir deyja af öðrum orsökum s.s. elli áður en nyrun fara að bila af völdum þessa. Þess vegna geta nokkrar kynslóðir katta hafa komið út af PKD jákvæðum ræktunar köttum ( sem ekki hafa verið greindir með sónar- og eða DNA prófum) áður en bera fer á einkennum hans og sjúkdómurinn því breiðst út í stofninum. Að öllu jöfnu eru 50 % líkur á að kettlingur erfi þennan sjúkdóm sé annað foreldri hans jákvætt en 75 % séu báðir foreldrar jákvæðir. .........Undanfarin ár var sónarpróf sú leið sem farin var til að greina hvort nyru katta bæru merki þess að kötturinn bæri þennan sjúkdóm. Það var í fyrsta lagi hægt við 6-9 mánaða aldur og talið 91-99%öruggt að því gefnu að reynt starfsfólk með réttan búnað framkvæmdi skoðunina. Því miður er þessi tækni og þekking ekki fyrir hendi hérlendis. En , með tilkomu nyja DNA prófsins sem kom á markað í janúar 2005 er leikur einn að taka syni/ strok úr munni kattar og senda á þær rannsóknarstofur erlendis sem bjóða upp á greiningu. Lang flestir metnaðarfullir ræktendur um allan heim eru nú markvisst að taka þátt í að uppræta þennan sjúkdóm með því að senda DNA sýni til rannsókna og geta því markvisst unnið að því að rækta PKD sjúkdóminn úr stofninum án þess að glata dýrmætum ræktunarlínum.

Hver eru einkenni PKD ?

Algengustu byrjunareinkenni sjúkdómsins eru deyfð, minnkun eða missir matalystar, óeðlilegurþorsti, óeðlileg þvaglát og þyngdartap, uppköst. Á lokastigum sjúkdómsins hætta nyrun að virka, kötturinn fellur í kóma og deyr. Ath að þessi einkenni þurfa þó ekki að þyða að kötturinn sé með PKD. Þau geta einnig fylgt öðrum sjúkdómum sem ekki eru ólæknandi. Að hafa DNA próf kattarins eða foreldra hans við hendina, sem útiloka þennan möguleika, auðveldar því dyralæknum greiningu áöðrum sjúkdómum.


 

 

 

Webdesign by Mandy

best viewing 1024 x 768